Að taka hús í fóstur
15.4.2009 | 21:20
Það var eitthvað svo ljúfsárt að sjá og heyra í hugsjónafólkinu sem tók einn af gömlu kofunum í miðbæ Reykjavíkur í fóstur, en voru flæmd burtu af löggunni. Þarna átti að gera góða hluti, rækta kál, gefa rófur og kartöflur, stunda nám og róttækni.
Auðvitað er eignarréttur einskis virði. Maður sér hús sem ekki er í notkun og flytur inn. Sama hlýtur að gilda um bílana. Það eru alls staðar mannlausir bílar og um að gera að vera ekki að kaupa sér bíl, heldur bara taka þann næsta sem er mannlaus. Svo eru allar verslanir fullar af alls kyns varningi sem enginn er búinn að kaupa. Eflaust er það vegna þess að enginn vill kaupa. Bara - fara inn og nýta það sem enginn nýtir.
En af því að nú er einhver hópur hugsjónafólks hins nýja Íslands á götunni í 101, þá langar mig til að benda á ágætt hús austur á Fáskrúðsfirði sem enginn nýtir. Farið þangað. Þar er líka nóg land til að rækta kál. Svo spillir ekki að stutt er að fara í heimsókn til Alcoa, taka með sér garðávextina og láta þeim rigna yfir ósómann !
Athugasemdir
Það vantar fleira hugsjónarfólk í borgina
Sturla Snorrason, 16.4.2009 kl. 18:38
Það hefur vakið undrun mína að sjá fólk styðja þessa glæpamenn sem settust ólöglega að á Vatnsstígnum. Þar vann lögreglan gott starf með að flæma þennan ólýðræðislega hóp burt. Góður pistill annars
Hilmar Gunnlaugsson, 17.4.2009 kl. 22:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.