Það má sjá þetta frá öðru sjónarhorni
10.4.2009 | 12:28
Mér kemur ekkert á óvart þótt SjálfgræðisFLokkurinn fái peninga frá fyrirtækjum og einstaklingum. Bara eðlilegt, sé haft í huga hvert raunverulegt eðli og innræti er hjá flokksmönnum. Svipað er það eflaust í öðrum valdablokkum líka. Það góða í þessu er að nú kemur raunverulegt eðli sérhagsmunaklíkanna í ljós.
Verra þykir mér að "stjórnmálaflokkar" skuli fá framlög af almannafé og vera á fjárlögum ríkisins. Það ætti að banna með lögum og verður vonandi gert um leið og það verður bannað með lögum að þingmaður geti verið ráðherra samtímis setu á Alþingi.
Látum bara ránfuglana éta þau hræ sem þeir hafa lyst á, en ég frábið mér að þurfa að horfa upp á að hluti af mínu framlagi til samfélagsins fari í gegnum skattkerfið til stjórnmálaflokka, - sama hvað þeir heita.
Skeytasendingar á vefsíðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ef stjórnmálaflokkar eru ekki fjármagnaðir af almannafé, þá verða þeir að sækja sitt til fyrirtækja og einstaklinga. Það er ávísun á spillingu. Hins vegar má vel draga úr streyminu til stjórnmálaflokkanna. Það er engin ástæða til þess að verið sé að fjármagna dýrar auglýsingaherferði og launuð störf á skrifstofum flokkanna af almannafé.
Einar Solheim, 10.4.2009 kl. 13:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.