Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009
Öldruðum safnað í blokkir. Svei !
24.7.2009 | 15:44
Auðmenn eða ekki auðmenn. Alltaf þegar ég sé eða heyri um það að byggðar séu blokkir fyrir gamalt fólk, þá fer hrollur um mig. Hvers vegna í ósköpunum er ekki hægt að byggja húsnæði fyrir gamalt fólk á einni hæð, þannig að íbúarnir eigi þess kost að finna þó ekki væri nema örfáir fermetrar af grasi undir iljum sínum utan við húsdyrnar ? Ég hef sjálfur horft upp á hreinan harmleik gamalla hjóna sem fluttu úr sveitinni í blokk. Þau höfðu ekki haft annað ónæði um ævina en að heyra spóann vella á vorin. En nú urðu þau svefnlaus af umgangi ókunnugs fólks og umferð af ýmsu tagi.
Það er nóg landrými bæði á Húsavík og annars staðar á landinu til að byggja hverfi smærri húsa, raðhúsa eða parhúsa fyrir fólk sem flest hefur eytt ævinni á jarðhæð eða í mesta lagi á 2. hæð. Mig grunar að það sé ekki velferð íbúanna sem ræður þessari blokkadellu, heldur hagræðing fyrir þá sem eiga að sinna gamla fólkinu.
Þjónustuíbúðir verði auðmannafangelsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)