Stolin hugmynd
29.6.2009 | 23:37
Þetta var nú bara svona í meðallagi frumlegt. Þegar sveitarstjórinn á Djúpavogi var bæjarstjóri á Egilsstöðum var framinn listagerningur á bæjarstjóralimúsínunni (gamalli Mözdu) og henni pakkað vel og vandlega í rautt plast. Því miður á ég ekki mynd af þeim frábæra gerningi, en ef einhver gamall vinnufélagi á mynd, þá er hér með lýst eftir henni.
Ég er ekki í vafa um hvaðan hugmyndin að þessum Djúpavogsgerningi núna er komin
Djarfur hrekkjalómur á Djúpavogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
bæði þessi dæmi eru pottþétt að herma eftir öðrum, þetta er eldgamall brandari sem hefur örugglega við framkvæmdur milljón sinnum um allann heim, það er bara ekkert frumlegt við þetta.
Óli (IP-tala skráð) 30.6.2009 kl. 17:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.