5.6.2010 | 17:37
Algerlega ósammála
Því skyldum við kjósa framkvæmdavald beinni kosningu og Alþingi í annari ?
Það á að koma því þannig fyrir að alþingismenn séu ekki kjörgengir til ráðherraembætta. Alþingi á að ráða ráðherrana til starfa sem sína þjóna, sem fara með framkvæmdavaldið á þann hátt sem þingið ákveður með lögum og öðrum fyrirmælum. Það þarf að takmarka vald ráðherranna verulega, m.a. vald til setningar reglugerða.
Forsetinn er síðan "umboðsmaður stjórnarskrárinnar" og þeirra grundvallarreglna sem hún setur
|
Gagnrýndi stjórnvöld harðlega |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2010 | 11:21
Hvenær læra blaðamenn stafsetningu ?
Hyllir undir meirihluta.... skrifar auminga maðurinn.
Veit hann ekki muninn á því að hylla einhvern eða eitthvað eða að það hilli undir eitthvað ?
Ég vona að það HILLI undir að maður hnjóti ekki stöðugt um aulaambögur á mbl.is
|
Hillir undir meirihluta í borginni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2010 | 21:03
Lýðræðishalli
Ég stóð upp frá sjónvarpinu sem er að sýna viðtöl við forystumenn allra framboðanna í Reykjavík. Ég nenni ekki að hlusta á þetta lengur, því ég fer ósjálfrátt að hugsa um hvað Reykjavík eiginlega er, eins og ég sé höfuðborgina mína. Ég segi mína, því ég er Íslendingur og á heima á þessu landi sem á eina höfuðborg. Og það er þá líka mín höfuðborg.
Í Reykjavík er Alþingi, Stjórnarráðið, Háskóli Íslands, Landspítali-Háskólasjúkrahús og nær allar íslenskar ríkisstofnanir. Og innanlandsflugvöllurinn, sem er tengiliðurinn við höfuðborgina mína.
Allt er þetta í einu og sama sveitarfélaginu. Og auðvitað hefur sveitarstjórn þessa sveitarfélags mikið um það að segja hvernig þessum stofnunum okkar allra vegnar. Fyrir utan það að þessar stofnanir okkar allra, mín og þín, skila þessu eina sveitarfélagi mjög miklum tekjum.
Ég hef ekki kosningarétt til neinnar annarrar sveitarstjórnar en þeirrar sem situr í því sveitarfélagi sem ég bý í. Sveitarstjórn Reykjavíkur hefur skipulagsvald, eins og aðrar sveitarstjórnir og nú stefnir allt í það að í Reykjavík verði þessu skipulagsvaldi beitt til að úthýsa Reykjavíkurflugvelli, sem er þó mikilvægasta tenging mín við höfuðborgina mína og stofnanir okkar allra sem þar eru.
Þegar fram fór atkvæðagreiðsla um framtíð flugvallarins í Vatnsmýri fór fram höfðu allir Reykvíkingar með atkvæðisrétt möguleika á að greiða atkvæði. Líka Kjalnesingar, sem búa talsvert lant frá vellinum og hafa ekki mikilla hagsmuna að gæta. Á sama tíma gátu íbúar á Kársnesi í Kópavogi ekki kosið, þó þeir búi undir aðflugsleið að vellinum úr suðri. Því síður ég, þó ég eigi beinna hagsmuna að gæta.
Ég sé bara eina lausn á þessu: Það þarf að skilgreina miðborg Reykjavíkur og flugvallarsvæðið sem sérstakt svæði sem ekki er hluti af sveitarfélaginu Reykjavík. Ekki hluti af neinu sveitarfélagi í venjulegum skilningi, heldur svæði sem hefur sérstaka yfirstjórn sem kosið er til af öllum landsmönnum.
Ég á ekki heima "úti á landi", eiginlega frekar "inni á landi", því það er langt til sjávar frá mínu heimili. Ég á heima á Íslandi og landið allt er landið mitt, heimaland mitt. Í þessu landi er ein höfuðborg sem ég á hlutdeild í, til jafns við alla aðra sem búa í landinu, hvort sem þeir eiga heima langt eða stutt frá sjó, eða langt eða stutt frá höfuðborginni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2010 | 17:47
Matarleyfi ?
Mér finnst vanta í fréttina hvort auk dagblaðanna hafi verið einhver skjöl með útgefnum "matarleyfum". Greinilegt er samt að þessi gerningur var gerður í leyfisleysi.
Það er annars löngu kominn tími á það að "skríbentar" frétta á mbl.is læri stafsetningu.
|
Bílnum pakkað inn í plast |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2010 | 15:22
Til hamingju, Djúpavogsbúar !
|
Skemmtiferðaskip til Djúpavogs í gær |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.5.2010 | 10:58
Mannekla
|
Gæsluvarðhaldsúrskurður kærður |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.5.2010 | 13:59
Nú ættu Jóhanna og Steingrímur að þegja
Þó margir séu reiðir og jafnvel þó svo sé komið málum sem raun ber vitni, þá er ein grundvallarregla enn í gildi í okkar réttarfari: Enginn er sekur fyrr en dómstóll hefur dæmt sekt. Að heyra blaðrið í þessari gömlu og þreyttu konu sem við köllum forsætisráðherra og sömuleiðis í Heilögum Steingrími gengur út yfir allt. Þau eru komin í flokk með forsetanum með ótímabært og óábyrgt tal.
Að forsvarsmenn framkvæmdavaldsins skuli voga sér að opna munninn opinberlega um sakamál á þessu stigi er óafsakanlegt. Burtséð frá því hvað þau eða við hin meinum um viðkomandi einstaklinga og burtséð frá því þótt við hugsum forsprökkum útrásarinnar þegjandi þörfina.
Látum dómsvaldið og réttvísina vinna sitt verk án þess að blanda okkur í það
|
Kaupþingsmenn í gæsluvarðhald |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.4.2010 | 10:55
Úffelín greifi gengur aftur !
Það rifjast upp fyrir mér stórkostlegur kafli úr Íslandsklukku Halldórs Laxness:
"Ef varnarlaus smáþjóð hefur mitt í sinni ógæfu borið gæfu til að eignast mátulega sterkan óvin mun tíminn gánga í lið með henni einsog því dýri sem ég tók dæmi af. Ef hún í neyð sinni játast undir tröllsvernd mun hún verða gleypt í einum munnbita.
......
Hver er þá orðinn hlutur þeirrar þjóðar sem skrifaði frægar bækur? Þeir íslensku mundu þá í hæsta lagi verða feitir þjónar þýsks leppríkis. Feitur þjónn er ekki mikill maður. Barður þræll er mikill maður, því í hans brjósti á frelsið heima."
|
Íslandslán ekki á dagskrá AGS |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2010 | 17:33
Öxi verður að laga sem fyrst
Þessi frétt sýnir glögglega að það er kominn tími á þessa styttingu Hringvegarins um 61 km. Það er búið að hanna nýjan veg um Öxi og þegar hann verður kominn verður þetta ekkert mál.
Erlendir ferðamenn skoða oft vegakort og fara eftir því. Og vitanlega blasir við á korti að þetta er leiðin milli Suðausturlands og Miðausturlands. Ef vegir eiga að vera lokaðir þarf að merkja þá með merki sem allir ökumenn þekkja, kringlótt skilti með rauðum hring, fylltum með gulum lit.
|
Ferðamenn festu sig á Öxi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
30.12.2009 | 17:02
Ögurstundin nálgast
Enn er von. Verði Icesave-frumvarpið fellt í kvöld kemur upp sú stða sem Pétur Blöndal lýsti í Kastljósi Sjónvarpsins í gær. Þá er bara að vona að Bretar og Hollendingar lýsi því yfir að þeir sætti sig ekki við niðurstöðu Alþingis frá í ágúst sl. og að málið fari fyrir íslenska dómstóla. Versta niðurstaðan úr því yrði aldrei verri en það sem ríkisstjórnin er nú að þvinga í gegn.
Eflaust hangir fleira á spýtunni. Vera kann að með dómsmáli um Icesave fari draumar Samfylkingarinnar um Evrópusambandsaðild út í veður og vind. Um sinn. Og þó ég sé eindreginn stuðningsmaður aðildar að Evrópusambandinu, þá vil ég ekki að hún verði of dýru verði keypt. Ekki heldur vil ég horfa upp á Ísland fara þar inn skottið milli fóta og allt í óreiðu í okkar málum. Evrópusambandaðild á eftir að koma, jafnvel þó við deilum um það mál jafn lengi og við deildum um það hvort drekka mætti bjór í landinu. Það er bara ekki rétti tíminn núna þegar óvissan í okkar málum er svo mikil sem raun ber vitni.
|
Icesave-umræðu lýkur í kvöld |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)



drezi
pelli
hallibjarna
jakobk
lindagisla
omarbjarki
reynir
midborg





